Samsung
Samsung Group 삼성그룹/三星그룹 | |
Rekstrarform | Samsteypa |
---|---|
Staðsetning | Samsung Town, Seoul, Suður-Kórea |
Lykilpersónur | Lee Kun-hee |
Starfsemi | Afþreyingar, auglýsingar, byggingar, efni, fjármálaþjónusta, föt, hálfleiðarar, hótel, lækningatæki, rafmagnsíhlutir, rafmagnstæki, samskiptabúnaður, skip, smásala |
Tekjur | US$247,5 milljarðar (2011) |
Starfsfólk | 369.000 (2011) |
Vefsíða | www.samsung.com |
Samsung er suðurkóresk samsteypa með höfuðstöðvar í Samsung Town í Seoul. Fyrirtækið samanstendur af nokkrum dótturfyrirtækjum en flest þeirra eru rekin undir merkinu Samsung. Það er stærst svokallaðra chaebol-fyrirtækja, sem er kóreskt heiti á þessari tegund samsteypa.
Samsung var stofnað sem verslunarfyrirtæki árið 1938 af Lee Byung-chul. Á næstu þremur áratugunum sem fylgdu óx fyrirtækið og hóf starfsemi á nokkrum nýjum sviðum, meðal annars matarvinnslu, vefnaðariðnaði, tryggingu og smásölu. Samsung fór í rafmagnstækjaiðnaðinn á seinniparti sjöunda áratugarins og fór í byggingar- og skipasmíðaiðnaðina á áttunda áratugnum. Velgengni Samsung í þessum iðnuðum leiddi til mikils vaxtar þess næstu árin. Eftir dauða Byung-chuls árið 1981 var fyrirtækinu skipt upp í fjóra hluta: Samsung Group, Shinsegae Group, CJ Group og Hansol Group. Í byrjun tíunda áratugarins byrjaði Samsung að alþjóðavæða starfsemi sína og rafmagnstæki eru orðin helsta tekjuöflunarleið þess.
Samsung hefur mikil áhrif á stjórnmál, fjölmiðla og menningu Suður-Kóreu. Fyrirtækið hefur gegnt mikilvægu hlutverki í efnahagsvexti Suður-Kóreu og saman framleiða Samsung-fyrirtækin um það bil fimmtung allra útflutningsvara landsins.