iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.
iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.



Link to original content: https://is.wikipedia.org/wiki/Ralph_Nader
Ralph Nader - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Ralph Nader

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ralph Nader
Ralph Nader árið 2007.
Fæddur27. febrúar 1934 (1934-02-27) (90 ára)
ÞjóðerniBandarískur
MenntunPrinceton-háskóli
Harvard-háskóli
Undirskrift

Ralph Nader (f. 27. febrúar 1934) er bandarískur neytendatalsmaður, lögfræðingur og rithöfundur af líbönskum ættum. Hann var fæddur 27. febrúar árið 1934 í bænum Winsted í Connecticut. Árið 1958 útskrifaðist hann með lögfræðigráðu frá Harvard-háskóla. Árið 1959 starfaði hann sem lögfræðingur í Hartford í Connecticut og sem fyrirlesari um sögu og stjórnmál í Hartford-háskóla frá 1961-1963.

Árið 1965 gefur hann út bókina Unsafe at any speed (ísl. Óöruggur á hvaða hraða sem er). Þessi bók var formleg ákæra á hendur bílaiðnaðarins í Detroit, þar sem hann ásakaði framleiðendur um að setja stíl fram yfir öryggi þegar bílarnir voru hannaðir. Í kjölfarið, árið 1966, skrifaði Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseti undir og tók í gildi þjóðarlög um öryggi umferðar og vélknúinna ökutækja (e. National Traffic and Motor Vehicle Safety Act).

Á ferli sínum sem neytendatalsmaður stofnaði Nader mörg samtök, þ.á m. Center for Study of Responsive Law, Public Interest Research Group, Center for Auto Safety, Public Citizen, Clean Water Action Project, Disability Rights Center og mörg fleiri.[1]

Nader og forsetaframboð

[breyta | breyta frumkóða]

Þann 19. ágúst árið 1996 var Nader tilnefndur sem frambjóðandi Græna flokksins til forseta. Í þeim kosningum fékk hann 685.000 atkvæði eða um 0,71% af heildaratkvæðum þjóðarinnar.

Í nóvember árið 2000 er hann svo aftur tilnefndur sem frambjóðandi Græna flokksins til forseta. Í þetta skipti fékk hann 2,8 milljónir atkvæða eða um 2,75% af heildaratkvæðum þjóðarinnar.

Þann 22. febrúar árið 2004 tilkynnti Nader framboð sitt til forseta sem sjálfstæður aðili. Í þeim forsetakosningum fékk hann 411.304 atkvæði eða um 1% af heildaratkvæðum.

Í kjölfar þessarra kosninga höfðaði Nader mál á hendur Þjóðarnefndar Demókrataflokksins (e. Democratic National Committee), framboð Johns Kerry og einnig samtökin PAC America coming together þar sem hann sakaði þessa aðila um að leggjast gegn því að hann fengi að komast á kjörseðla nokkurra fylkja. Málinu var síðar vísað frá.

Þann 24. febrúar árið 2008 tilkynnti Nader fjórða framboð sitt til forseta, aftur sem sjálfstæður aðili. Í þessum kosningum fékk hann mjög fá atkvæði og hafði hann lítil sem engin áhrif á lokaniðurstöðu kosninganna.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Ralph Nader biography“.
  2. „Ralph Nader fast facts“.