Netslóð
Netslóð er dæmi um staðlað gagnaauðkenni (e. URI). Veffang er í almennu tali netslóð sem vísar á vefsíðu en netslóðir geta vísað á margt fleira en vefsíður, t.d. skjalamöppur á FTP-þjóni og margmiðlunarefni sem veitt er um MMS-þjón.
Dæmi um hvernig slóð er brotin niður:
ftp://notandi:lykilorð@tildaem.is:992/farartaeki/bifreid?tegund=4dyra#framhluti \___/ \_____________/ \________/ \_/\_________________/\___________/\________/ | | | | | | | samskiptamáti innskráning hýsill port slóð beiðni tengill/brot
Flestir nota þó aðeins lítinn hluta af svona slóð við að heimsækja vefsíður á netinu, t.d. bara samskiptamáta- og hýsils-hlutana (e. host).
Dæmi um innslátt í vafra:
http://tildaem.is
Bygging
[breyta | breyta frumkóða]Bygging netslóða segir til um hvernig slóðir eiga að vera byggðar upp og hvað gera eigi við þær.
Innskráning
[breyta | breyta frumkóða]Innskráning (e. login) er ekki mikið notuð á þann hátt sem hér birtist þar sem flestir vilja ekki að lykilorðið birtist í netslóðinni.
Hýsill
[breyta | breyta frumkóða]Hýsill (e. host) getur verið auðkenndur með IP-fangi (e. IP-Address) eða hýsilsnafni (e. host name). Hýsilsnafnið er venjulega DNS lén sem skiptist í tvo hluta; rótarlén (til dæmis .is) og Í dæminu að ofan er lénið "tildaem" og rótarlénið "is". Sérstakar skrifstofur sjá um úthlutun léna og stjórnar oft ein skrifstofa einu rótarléni. Á Íslandi er það ISNIC sem stjórnar úthlutun léna innan .is rótarlénsins. Rótarlénum er svo úthlutað af IANA (Internet Assigned Numbers Authority).
Port
[breyta | breyta frumkóða]Port-hlutinn segir til um á hvaða porti skuli reyna að tengjast. HTTP-staðallinn notar port 80 og er það því sjálfgefna gildið í flestum vöfrum sleppi notandi að slá port-númer inn.
Slóð
[breyta | breyta frumkóða]Slóðin segir til um hvaða gögn miðlarinn (hýsillinn) á að senda til biðlarans (notandans).
Beiðni
[breyta | breyta frumkóða]Beiðnar-hlutinn segir til um skilyrði sem gögnin skulu uppfylla.
Sé slóðar- og fyrirspurnar-hlutunum sleppt er náð í sjálfgefna síðu, sem skilgreind er af hýsli.
Brot/tengill
[breyta | breyta frumkóða]Tengill/brot segir til um hvar á síðunni eigi að byrja að birta gögnin.
EBNF
[breyta | breyta frumkóða]Hér er algengri byggingu staðlaðra gagnaauðkenna (e. URI) lýst í EBNF fyrir þá sem finnst lýsingin hér á undan óljós eða of löng, en Netslóðir eru stöðluð gagnaauðkenni.
netslóð = bygging ":" ( [ "//" [ hýsill ] "/" ] | [ hýsill ] ) [ slóð ] [ "?" beiðni ] [ "#" brot ] bygging = stafur [ stafur | tala | "-" | "+" | "." | hýsill = nafn | IPv4 | IP slóð = bókstafir [ "/" slóð ]* | "" beiðni = bókstafir "=" bókstafir [ "&" beiðni ]* brot = bókstafir*
Lýsingin er að miklu leiti fengin úr RFC 3986.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „URL“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt apríl 2007.
- Berners-Lee, Tim; Network Working Group (janúar 2005). „RFC 3986 – URI:“. RFC 3986 (enska). W3C/MIT. Sótt 18. febrúar 2009.