iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.
iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.



Link to original content: https://is.wikipedia.org/wiki/Heims_um_ból
Heims um ból - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Heims um ból

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Heims um ból er frumortur jólasálmur eftir Sveinbjörn Egilsson. Heims um ból er þó oftast sunginn við sama lag og hið fræga jólakvæði Stille Nacht! Heilige Nacht! og því hefur sá misskilningur komið upp að Heims um bólþýðing, en svo er ekki. Hinn upprunalegi Stille Nacht er eftir séra Joseph Mohr og lagið eftir organistann Franz Gruber og var hvortveggja samið árið 1818. Matthías Jochumsson þýddi sálminn á íslensku og heitir þýðing hans: Hljóða nótt, heilaga nótt. En kvæði Sveinbjörns er þó lang oftast sungið við lag Franz Gruber eins og áður sagði.

Heims um ból

[breyta | breyta frumkóða]
Heims um ból, helg eru jól,
signuð mær son Guðs ól,
frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:/: meinvill í myrkrunum lá. :/:
Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:/: konungur lífs vors og ljóss. :/:
Heyra má himnum í frá
englasöng: Allelújá.
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:/: samastað syninum hjá. :/:
  • „Hvernig jólasálmurinn „Heims um ból“ varð til“, Lesbók Morgunblaðsins 1943
  • „Um uppruna nokkurra sígildra jólasálma“, Lesbók Morgunblaðsins 1964
  • „Hvað merkja orðin 'Heims um ból'?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvað þýðir 'meinvill' í sálminum Heims um ból?“. Vísindavefurinn.
  • „Hvað þýðir 'tilreiðir sér' í sálminum Heims um ból?“. Vísindavefurinn.
  Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.