Glenn Close
Útlit
Glenn Close | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | 19. mars 1947 Greenwich, Connecticut |
Þjóðerni | Bandarískur |
Störf | Leikari, söngvari, framleiðandi |
Ár virk | 1974–nútíð |
Maki | Cabot Wade (1969-1971) James Marlas (1984–1987) David Evans Shaw (2006–2015) |
Börn | 1 |
Clenn Close (fædd 19. mars 1947) er bandarísk leikkona. Hún hefur fimm sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, tvisvar fyrir leik í aðalhlutverki, Fatal Attraction 1987 og Dangerous Liasions 1988, og þrisvar fyrir leik í aukahlutverki, The World According to Garp 1982, The Big Chill 1983 og The Natural 1984. Einnig er hún þekkt fyrir að hafa leikið Grimmhildi Grámann í kvikmyndunum 101 dalmatíuhundur og 102 dalmatíuhundar með Gerard Depardieu.
Hún hefur einnig leikið í fjölda söngleikja og sviðsleikrita. Í mars 2011 var hún ráðin til að leika aðalhlutverkið í fyrirhugaðri kvikmynd um feril skosku söngkonunnar Susan Boyle.