Hatari vann Söngvakeppnina Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. mars 2019 22:15 Hatarar virtust kátir með sigurinn. Mynd/RÚV Hljómsveitin Hatari vann Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Hafði hún betur gegn Friðriki Ómari í einvígi í úrslitum Söngakeppninnar. Hatari verður því fulltrúi Íslands í Ísrael í maí. Hatari flutti lagi Hatrið mun sigra en Friðrik Ómar flutti lagið Hvað ef ég get ekki elskað? Framlag Íslands heyrist á fyrra undanúrslitakvöldinu þann 14.maí. Ljóst er að Ísland verður í seinnihlutanum á fyrra undankvöldinu sem haldið verður í Tel Aviv. Hljómsveitina skipa Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan. „Tilfinning er óttablandin virðing fyrir þessu verkefni sem þjóðin hefur falið okkur,“ sagði Matthías Tryggvi eftir sigurinn. Undir þetta tók félagi hans Klemens. „Ég er bara að anda inn og út. Spenntur hvað þetta tækifæri býður upp á,“ sagði Klemens. „Þetta er samkvæmt áætlun Svikamyllu ehf. Við erum einu skrefi nær því að knésetja kapitalismann,“ sagði Matthías Tryggvi. Þá þökkuðu þeir einnig traustið. „Góðir íslendingar takk fyrir traustið. Við munum sinna þessu verkefni af alúð og setja málefni á dagskrá sem skipta máli. Takk fyrir,“ sagði Matthías Tryggvi. Ekki var greint frá fjölda atkvæða atriðanna á úrslitakvöldinu og því liggur ekki nákvæmlega fyrir hvernig atkvæðin röðuðu sér á milli atriða.Atriðið þykir nokkuð sérkennilegt.Mynd/RúvHljómsveitin Hatari hefur átt mikilli velgengni að fagna síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið með iðnaðar-teknó með pólitískum oddi og afar líflega sviðsframkomu. Hljómsveitin Hatari var stofnuð árið 2015.Meðlimir Hatara eru þekktir fyrir BDSM-legan klæðnað sem þeir komu ávallt fram í og gríðarlega leikræna tjáningu í tónlistarflutningi sínum. Þetta vakti mikla lukku og útnefndi Reykjavík Grapevine sveitina til dæmis bestu tónleikasveit ársins tvö ár í röð og erlendir miðlar eins og Line of Best Fit héldu vart vatni yfir frammistöðu Hatara á Airwaves-hátíðinni, að því er fram kom í umfjöllun umhljómsveitina í Fréttablaðinu. Eurovision Tengdar fréttir Þetta höfðu landsmenn að segja um frammistöðu keppenda í Söngvakeppninni Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fer fram í Laugardalshöll í kvöld en líkt og fyrri ár hafa áhorfendur farið á kostum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 21:00 Bjarni Ben um kökugerð Hatara: „Gera menn hvað sem er fyrir atkvæði?“ Það vakti talsverða athygli að hljómsveitin Hatari hermdi eftir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, er þeir sýndu hvernig skreyta á köku í innslagi á undan atriði hljómsveitarinnar í úrslitum Söngvakeppninnar á RÚV í kvöld. 2. mars 2019 21:16 Landsmenn tísta um úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins: Falin markaðsetning fyrir Vogaídýfu? Bestu tístin frá umræðum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 19:55 Mest lesið Bríet olli vonbrigðum Gagnrýni Lífið leikur við Sveindísi Jane og Rob Holding Lífið Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Lífið „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Bíó og sjónvarp Fox á lausu eftir að hafa fundið óviðeigandi efni í síma kærastans Lífið Heitir Vilhjálmur eins og pabbi Lífið Bjargar deginum að komast aðeins úr klefanum Lífið Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar Lífið Hittust bara einu sinni eftir Friends Lífið Höll sumarlandsins komin á sölu Lífið Fleiri fréttir Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Hittust bara einu sinni eftir Friends Heitir Vilhjálmur eins og pabbi Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar Safna upplýsingum um jólahefðir Íslendinga Lífið leikur við Sveindísi Jane og Rob Holding Bjargar deginum að komast aðeins úr klefanum Allen White verður Rotta, sonur Jabba jöfurs Hvernig á að finna tíma til að elskast um jólin? Heillandi hæð kvikmyndagerðakonu við Ægisíðu Fox á lausu eftir að hafa fundið óviðeigandi efni í síma kærastans Höll sumarlandsins komin á sölu Mætti á dregilinn þrátt fyrir ásakanirnar Yrsa reykspólar fram úr Geir Villi Vill og Halla Vilhjálms á Nínu Umræða um kólesteról á villigötum Vala Eiríks og Óskar orðin foreldrar Einu sinni á ári eiga rithöfundar að umturnast í skemmtikrafta Keypti fyrstu íbúðina 21 árs og reif allt út Tileinkaði sér hæglæti og býr nú skuldlaust í sveitinni Friður og fegurð með silfurrefunum í Sigur Rós „Ég hrundi“ Mari sló met í eggheimtu Halla Vilhjálms á lausu Kittý og Egill byrjuð saman Stjörnulífið: Brúðkaup í Rússlandi og hiti í desember Var Kurt Cobain myrtur? Enginn ætti að lesa skilaboðin sem honum hafi borist Krakkatían: Póstnúmer, prumpulagið og pólitík Bein útsending: Sterkustu skákmenn landsins mætast Sjá meira
Hljómsveitin Hatari vann Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Hafði hún betur gegn Friðriki Ómari í einvígi í úrslitum Söngakeppninnar. Hatari verður því fulltrúi Íslands í Ísrael í maí. Hatari flutti lagi Hatrið mun sigra en Friðrik Ómar flutti lagið Hvað ef ég get ekki elskað? Framlag Íslands heyrist á fyrra undanúrslitakvöldinu þann 14.maí. Ljóst er að Ísland verður í seinnihlutanum á fyrra undankvöldinu sem haldið verður í Tel Aviv. Hljómsveitina skipa Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan. „Tilfinning er óttablandin virðing fyrir þessu verkefni sem þjóðin hefur falið okkur,“ sagði Matthías Tryggvi eftir sigurinn. Undir þetta tók félagi hans Klemens. „Ég er bara að anda inn og út. Spenntur hvað þetta tækifæri býður upp á,“ sagði Klemens. „Þetta er samkvæmt áætlun Svikamyllu ehf. Við erum einu skrefi nær því að knésetja kapitalismann,“ sagði Matthías Tryggvi. Þá þökkuðu þeir einnig traustið. „Góðir íslendingar takk fyrir traustið. Við munum sinna þessu verkefni af alúð og setja málefni á dagskrá sem skipta máli. Takk fyrir,“ sagði Matthías Tryggvi. Ekki var greint frá fjölda atkvæða atriðanna á úrslitakvöldinu og því liggur ekki nákvæmlega fyrir hvernig atkvæðin röðuðu sér á milli atriða.Atriðið þykir nokkuð sérkennilegt.Mynd/RúvHljómsveitin Hatari hefur átt mikilli velgengni að fagna síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið með iðnaðar-teknó með pólitískum oddi og afar líflega sviðsframkomu. Hljómsveitin Hatari var stofnuð árið 2015.Meðlimir Hatara eru þekktir fyrir BDSM-legan klæðnað sem þeir komu ávallt fram í og gríðarlega leikræna tjáningu í tónlistarflutningi sínum. Þetta vakti mikla lukku og útnefndi Reykjavík Grapevine sveitina til dæmis bestu tónleikasveit ársins tvö ár í röð og erlendir miðlar eins og Line of Best Fit héldu vart vatni yfir frammistöðu Hatara á Airwaves-hátíðinni, að því er fram kom í umfjöllun umhljómsveitina í Fréttablaðinu.
Eurovision Tengdar fréttir Þetta höfðu landsmenn að segja um frammistöðu keppenda í Söngvakeppninni Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fer fram í Laugardalshöll í kvöld en líkt og fyrri ár hafa áhorfendur farið á kostum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 21:00 Bjarni Ben um kökugerð Hatara: „Gera menn hvað sem er fyrir atkvæði?“ Það vakti talsverða athygli að hljómsveitin Hatari hermdi eftir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, er þeir sýndu hvernig skreyta á köku í innslagi á undan atriði hljómsveitarinnar í úrslitum Söngvakeppninnar á RÚV í kvöld. 2. mars 2019 21:16 Landsmenn tísta um úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins: Falin markaðsetning fyrir Vogaídýfu? Bestu tístin frá umræðum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 19:55 Mest lesið Bríet olli vonbrigðum Gagnrýni Lífið leikur við Sveindísi Jane og Rob Holding Lífið Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Lífið „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Bíó og sjónvarp Fox á lausu eftir að hafa fundið óviðeigandi efni í síma kærastans Lífið Heitir Vilhjálmur eins og pabbi Lífið Bjargar deginum að komast aðeins úr klefanum Lífið Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar Lífið Hittust bara einu sinni eftir Friends Lífið Höll sumarlandsins komin á sölu Lífið Fleiri fréttir Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum Hittust bara einu sinni eftir Friends Heitir Vilhjálmur eins og pabbi Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar Safna upplýsingum um jólahefðir Íslendinga Lífið leikur við Sveindísi Jane og Rob Holding Bjargar deginum að komast aðeins úr klefanum Allen White verður Rotta, sonur Jabba jöfurs Hvernig á að finna tíma til að elskast um jólin? Heillandi hæð kvikmyndagerðakonu við Ægisíðu Fox á lausu eftir að hafa fundið óviðeigandi efni í síma kærastans Höll sumarlandsins komin á sölu Mætti á dregilinn þrátt fyrir ásakanirnar Yrsa reykspólar fram úr Geir Villi Vill og Halla Vilhjálms á Nínu Umræða um kólesteról á villigötum Vala Eiríks og Óskar orðin foreldrar Einu sinni á ári eiga rithöfundar að umturnast í skemmtikrafta Keypti fyrstu íbúðina 21 árs og reif allt út Tileinkaði sér hæglæti og býr nú skuldlaust í sveitinni Friður og fegurð með silfurrefunum í Sigur Rós „Ég hrundi“ Mari sló met í eggheimtu Halla Vilhjálms á lausu Kittý og Egill byrjuð saman Stjörnulífið: Brúðkaup í Rússlandi og hiti í desember Var Kurt Cobain myrtur? Enginn ætti að lesa skilaboðin sem honum hafi borist Krakkatían: Póstnúmer, prumpulagið og pólitík Bein útsending: Sterkustu skákmenn landsins mætast Sjá meira
Þetta höfðu landsmenn að segja um frammistöðu keppenda í Söngvakeppninni Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fer fram í Laugardalshöll í kvöld en líkt og fyrri ár hafa áhorfendur farið á kostum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 21:00
Bjarni Ben um kökugerð Hatara: „Gera menn hvað sem er fyrir atkvæði?“ Það vakti talsverða athygli að hljómsveitin Hatari hermdi eftir Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, er þeir sýndu hvernig skreyta á köku í innslagi á undan atriði hljómsveitarinnar í úrslitum Söngvakeppninnar á RÚV í kvöld. 2. mars 2019 21:16
Landsmenn tísta um úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins: Falin markaðsetning fyrir Vogaídýfu? Bestu tístin frá umræðum á Twitter undir myllumerkinu #12stig. 2. mars 2019 19:55