iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.
iBet uBet web content aggregator. Adding the entire web to your favor.



Link to original content: http://rannis.is/starfsemi/
Hlutverk Rannís | Starfsemi | Rannsóknamiðstöð Íslands
Starfsemi

Hlutverk Rannís

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís styður þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum, ásamt því að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag.

Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar.

Rannís heyrir undir háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003.

Nánar um Rannís


Starfsemi

Undirkaflar

Upplýsingastofa um nám erlendis

Rannís hefur umsjón með Upplýsingastofu um nám erlendis sem veitir upplýsingar um skólakerfi erlendis, aðgang að námi, umsóknarfresti, skólagjöld, tungumálapróf, mögulega styrki og önnur atriði sem varða flutning milli landa. Upplýsingastofa um nám erlendis rekur vefsíðuna FaraBara.is ásamt Sambandi íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE). FaraBara veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis.

farabara.is


Alþjóðlega norðurskauts­vísindanefndin

Rannís hýsir skrifstofu IASC í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi á lóð Háskólans á Akureyri, en þar eru fyrir stofnanir sem sérhæfa sig í rannsóknum, vöktun og miðlun upplýsinga um málefni norðurslóða. Á Akureyri er því öflugt norðurslóðasamfélag undir einu þaki sem gæti skapað ýmiss konar samvirkni við IASC skrifstofuna.

Nánari upplýsingar


Vísinda- og nýsköpunarráð

Vísinda- og nýsköpunarráð mótar opinbera stefnu í vísindum og nýsköpun á Íslandi. 

Heimasíða ráðsins


Gagnatorg Rannís

Þar má finna allar upplýsingar um umsóknir og úthlutanir úr þeim sjóðum sem Rannís hefur umsjón með, en stofnunin rekur um 30 sjóði á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar.

Heimsækja Gagnatorgið








Þetta vefsvæði byggir á Eplica