Fyrir hverja:
Lítil og meðalstór fyrirtæki, og opinberar stofnanir í sama stærðarflokki.
Til hvers:
Hægt er að sækja um styrk til að efla netöryggi og varnir.
Umsóknarfrestur:
Síðasti umsóknarfrestur var 1. október 2024.
Umsóknarfrestur er einu sinni til tvisvar á ári.
Markmið styrksins er að efla netöryggi og varnir, og stuðla þannig að öryggi gagnvart netárásum.
Styrkhæfir verkþættir þurfa að falla undir eftirfarandi flokka sem tengjast netöryggi:
Lítil og meðalstór fyrirtæki, SMEs, og opinberar stofnanir í sama stærðarflokki, samkvæmt skilgreiningu ESB:
Meðalstór fyrirtæki: Færri en 250 starfsmenn og velta undir 50 miljón evra eða efnahagsreikningur undir 43 miljón evra.
Lítil fyrirtæki: Færri en 50 starfsmenn og velta eða efnahagsreikningur undir 10 miljónum evra.
Örfyrirtæki: Færri en 10 starfsmenn og velta eða efnahagsreikningur undir 2 milljónum evra.
Styrkur getur numið allt að 9 milljónum króna samanlagt.
Að lágmarki 20% af heildarkostnaði við verkefnið.
Lokaskýrslu þarf að skila inn fyrir 20. ágúst 2025.
Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs Rannís
Til þess að umsókn teljist styrkhæf verður tengsl verkefnis við markmið Netöryggisstyrksins að vera augljós. Verkefnið þarf að vera vel skilgreint og tímaáætlun ljós.
Rannís hefur umsjón með styrknum í samvinnu við Eyvör NCC-IS og sér um yfirferð og mat umsókna.
Sótt er um í rafrænu umsóknakerfi Rannís - Mínar síður